|
13.02.2012 13:46:48 / heida
Þar sem blog.central er að fara að loka verðum við því miður að hætta með þessa síðu, sem er búin að vera síða búsins síðan í byrjun 2007, eða í um 5 ár. Ég er búin að eyða þónokkrum tíma í að setja upp nýju síðuna. Hún er enn í vinnslu, en er þó hægt að skoða eitthvað sem komið er.
»
13.02.2012 12:14:45 / heida
Vindótta hryssan sem er búin að vera úti í stóði hjá okkur í allan vetur fór suður á föstudag. Þessi hryssa var hjá okkur í tamningu, hún seldist síðan út, fylfull við Strák og verður hún flutt út núna. Vonandi sendir nýr eigandi myndir af folaldinu þegar það fæðist. Gæti orðið spennandi litur 

»
17.01.2012 16:42:54 / heida
Góðan dag, Í dag fæddist hvítur geithafur á Dynjanda. Þetta er mjög óvenjulegt þar sem geiturnar bera venjulega í apríl/maí. Engu að síður skemmtilegt! Hann hefur ekki enn hlotið nafn, en ég ákvað að skella inn myndum af honum og móður hans.  Litli með mömmu
Hahaha týpísk geit, finnst alltaf jafn fyndið hvað þær standa og stara á mann með tunguna smá úti.
»
02.01.2012 19:08:51 / heida

Frohe Weinachten und ein Gutes Neues Jahr! Merry Christmas and a happy new year!
»
25.12.2011 16:47:53 / heida
Góðan dag og gleðileg jól! Nú er síðan í uppfærslu og ætla ég að taka hana í gegn frá a-ö. Nokkuð verður um breytingar á næstu dögum og ætla ég að reyna að gera þetta allt aðgengilegra og einfaldara.. Vona að þið hafið það sem best um hátíðarnar! Jólakveðja, Dynjandi.
»
16.06.2011 10:46:25 / heida
Góðan dag, LOKSINS hafði ég tíma til að setjast niður og setja inn myndir af Huginsdótturinni hans Tobba.  Fleiri myndir af henni má skoða hér!
»
13.06.2011 21:29:23 / heida
Góðan dag, var að setja upp nýja vefsíðu fyrir gistinguna hjá okkur .. slóðin er http://dynjandi.123.is/ Síðan er ennþá í vinnslu, en þetta fer allt að koma á næstu dögum. 
»
12.06.2011 23:48:21 / heida
Góðan dag, soldið síðan ég hef bloggað hér.. enda nóg að gera.. Vildi bara koma því fram að um daginn fæddist hjá okkur brúnskjótt merfolald undan Hugin frá Haga og henni Glæringu, en við eigum fyrir veturgamla alsystir hennar.. ég smellti nokkrum myndum af henni í fyrradag.. því miður er ég ekki með þær, svo ég set þær inn, vonandi á morgun .. rosa flott á litinn .. og fyrsta og eina hryssan sem fæðist okkur á þessu ári. Á næsta ári eigum við von á slatta af spennandi folöldum og er hugmyndin að búa til link hérna á síðunni um hverju er von á .. fyrir mig aðallega .. því ég hlakka svo til! Skrámu var sleppt undir Strák í morgun, ég fékk að taka síðasta reiðtúrinn á henni og þakka mömmu enn og aftur fyrir það ! =) verður snilld þetta folald. Veit eiginlega ekki hvað ég á að segja meira.. er uppgefin eftir félagsmótið, en það var núna í gær og í dag.. gekk ekkert frábærlega.. eeen maður lærir bara á mistökunum =) Góða nótt  Litaskrúð!
»
09.06.2011 21:13:33 / heida
»
28.05.2011 17:09:16 / heida
Í gær fæddist þriðja folald ársins, en þetta er eins og hin tvö hestfolald undan Skugga okkar, en móðir hans er Kolbrá gamla. Folaldið var eitthvað að flýta sér í heiminn þar sem við mamma fórum í reiðtúr og kíktum á merina þegar við lögðum af stað og hún var bara að éta ... svo þegar við komum aftur þá var hún köstuð.
 Glæsilegur =)
 Kallinn! Nú er aðeins ein hryssa eftir óköstuð en það er hún Glæring og á hún von á folaldi undan Huginn frá Haga. Von er á því folaldi um miðjan júní. Næsta ár er svo von á fjölda af folöldum, en við erum búin að halda einni hryssu eins og lesa má um í fréttinni hér að neðan. Ætla að láta þetta duga í bili.
»
Síður: 1 2 3 ... 12
|